Wednesday, June 28, 2006

Minning

Litli nagbangsinn okkar hann Císeró er dáinn.
Photobucket - Video and Image Hosting
Hann var búinn að vera veikur í 2 mánuði áður en við urðum að kveðja hann. Þetta byrjaði með því að hann hætti að geta borðað og fór að léttast mikið og við skoðun sást að tennurnar hans voru allar skakkar og ofvaxnar þannig að hann gat varla kyngt. Fyrst leit út fyrir að hægt væri að bjarga honum með aðgerð og tímabundum matargjöfum svo við gerðum það og gáfum honum barnamat úr sprautum. Císó var ótrúlega duglegur og sætur og var eins og pelabarn á sprautunum nokkrum sinnum á dag í næstum allan þennan tíma.
Photobucket - Video and Image Hosting
Aðgerðin virkaði þó ekki eins og vonast var til og að lokum gátum við ekki lagt meira á litla grísinn og ákváðum að senda hann þangað sem allt er fullt af holum, grasi og grísakonum. Við eigum samt eftir að sakna hans þó hann sé pottþétt mjög hamingjusamur að vera kominn aftur í Andesfjöllin.

4 Comments:

Blogger This is all you have to know said...

Aumingja litli grísinn!
En það er rétt, hann er allavega kominn á betri stað núna og honum líður eflaust mjög vel.

Held samt að það séu fáir grísir sem fá jafn gott heimili og Císó fékk... verð nú bara að viðurkenna það! Heppinn Císó!

:)

12:10 PM  
Blogger Egill said...

:(

eg samhryggist..
Ciso var hress gaur og eg atti morg innihaldsrik samtol vid hann inni i kompunni ykkar

10:42 AM  
Anonymous Anonymous said...

æji, grey lill grís :(

(((knús)))) til ykkar!

kv. dossa

2:54 AM  
Anonymous Anonymous said...

ææiiii en hræðilegt, grey naggrísinn ykkar. En hann er núna hoppandi og skoppandi með öllum hinum nöggunum....

1:04 PM  

Post a Comment

<< Home