Sunday, December 11, 2005

Það les greinilega enginn það sem ég skrifa!

Þið verðið að lesa textann krakkar! Fólk er allt í einu farið að falla fyrir þessu prófi sem ég gerði hér fyrir neðan og síðasta klukkutímann hef ég fengið yfir 30 pósta frá öllum mögulegum aðilum og í heild eru svörin hátt í 100!
Elsku fólk.. Þetta er einhver hrekkur sem gengur um internetið og ég féll fyrir og fannst sniðugur en ég ætlaði í alvörunni ekki að láta þetta heppnast svona vel og hélt að það nægði að skrifa undir linknum að þetta væri gabb en svo var víst ekki! Ég bið alla afsökunar á þeim sálarlegu vandræðum sem þetta hefur kostað þá svona í prófatörninni.
Þeir sem sendu mér póst eftir klukkan 3 í dag þurfa samt ekkert að óttast uppljóstranir eða annað því ég eyddi þessu prófi og upplýsingunum sem því fylgdi án þess svo mikið að opna skrár forvitnislegustu einstaklinganna. Enginn, og þá ekki einu sinni ég, mun því vita um ástkonur/menn yðar. Jens var mjög ósamvinnuþýtt vitni að þessari eyðingu (hann vildi skoða allt og hefja mútustarfsemi) og getur fúllyndislega staðfest það að ekkert komst út.
Ástæðan fyrir þessari miklu eyðingu er að ég veit alveg hversu óþægilegt svona getur verið og ég nenni ekki að missa svefn yfir þessu með samviskubiti yfir líklegri angist mennta- og háskólanema. Ég er svo meyr krakkar.. þið vitið það!

Við skulum bara segja að sé fegin að hafa ekki sett inn prófið sem MannvonskuJensi stakk uppá.. þá væru lögfræðingar sennilega komnir á dyrnar hjá mér!
Image hosted by Photobucket.com
Kveðja, Erna platari og illmenni

7 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Mér finnst þessi færsla nú mála fullsvarta mynd af minni persónu.

9:13 PM  
Anonymous Anonymous said...

Já þessi dularfulli einstaklingur sem finnst að sér vegið hér á undan er semsagt ég.

-Jens

9:20 PM  
Anonymous Anonymous said...

Húff. Guði sé lof að ég tók þessa blessuðu könnun ekki.
Erna mín, þú ert ekki illmenni né Jens... held ég.
Btw, ég fann gamlan geisladisk heima með kóreskri danstónlist! Þetta er eins og að hlusta á 2 Unlimited, bara verra! :D
Farið á http://www.hi.is/~sok1 og downloadið þessu.

10:48 PM  
Anonymous Anonymous said...

Haha! Þið Brynja eruð báðar sömu aumingjarnir, greinilegt hver er hörkutólið í þessari fjölskyldu. Ég hefði bara hlegið dátt og sett útkomurnar úr þessu á síðuna muhaha! En hey, takk samt fyrir að senda mér listann með MR-ingunum og þeim sem þeir þrá, mjög áhugavert! ;)

11:27 PM  
Blogger Erna Blöndal said...

Já Marta mín.. þú hefur aldrei verið þekkt fyrir blíðu og tillitsemi annað en við systur þínar sem prumpum rósalykt!

Ahhh þarna kom einn góður *sniiiiiffff*
;)

12:53 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hmm... Er gerilsneyðing af öllum þokka einnig ættgengt? ;)

11:47 AM  
Blogger Erna Blöndal said...

Hahahah.. það mætti halda ;)

3:41 PM  

Post a Comment

<< Home