Saturday, September 10, 2005

Heillaóskir og ferðalög

Litla systir mín hún Brynja sem notar sama skónúmer og ég á 11 ára afmæli í dag og við Jensi óskum henni til hamingju með þennan áfanga. Einnig sendi ég baráttukveðjur til foreldra minna sem á þessari stundu búast við 16 hálfgelgjum í pizzu og twister.

Við Jens (ég er farin að segja þetta grunsamlega oft.. ætli það sé e-ð á milli okkar?) förum út á þriðjudaginn ásamt Daxa verkfræðingi og erum að deyja úr spenningi. Það er allt tilbúið, við eigum bara eftir að troða í bakpokann og kaupa okkur sólarvörn. Mér finnst leiðinlegt að Elín kemst ekki með í Gunnaheimsókn.
Það er sagt að sólarlag við Persaflóann sé guðdómlega fallegt. Það verður gaman að sjá hvort það slái Blásalasólarlagið út sem lætur mig sitja dreymna við gluggann löngum stundum!
Image hosted by Photobucket.com
Image hosted by Photobucket.com

Friday, September 02, 2005

Datt bara í hug að ykkur þætti gaman að vita það...
Ég ætla að þrífa alla íbúðina hátt og lágt í dag en ég kem mér ekki af stað...